|
|
 |
 |
Tuesday, June 21, 2005
Föstudagsframhaldssamtalssagan í heild sinni ...
Hérna er föstudagsframhaldssamtalssagan eins og lesendur kusu hana....
1. Góðan daginn... má bjóða þér að fjárfesta í þessu forláta innskó, sem gildir jafnframt sem flugmiði aðra leið til Papey ?
2. Árans óheppni.. ég var rétt í þessu að saga af mér annan handlegginn og með hinum held ég á söginni , ég get því miður ekki tekið á móti inniskónum forláta !
3. Ég get installað windows 95 inn í rassgatið á þér og endurforritað tittlinginn á þér, svo þú getir notað hann sem handlegg..!!
4. Nei , þakka þér fyrir... síðast þegar ég lét blekkjast af síðhærðum mannapa , uxu tveir skakkir hrossalimir á ennið á mér !
5. Leyfist mér að handfjattla þessa ótömdu ennisútlimi þína líkt og óvitungur handfjattlar heimasmíðað kústskaft ?
6. Eigum við ekki frekar að fara á steikhús og svo í leikhús?
7. Nei, ég kemst ekki neitt af því að pungurinn á mér er hlekkjaður við látinn offitusjúkling.
8. Ertu viss um að þú sér ekki offitusjúklingur, hlekkjaður við punginn á sjálfum þér sem hefur verið látinn síðan hann kramdist milli læranna á þér í fyrra?
9. jú kannski.. en samkvæmt nýjasta tölublaði "útvegsfréttir fyrir feita og forljóta" er ég graðasti offitusjúklingurinn reiknað út frá fróunartíðni feita "shemale" mammúta frá Fellabæ...
Einnig hefði hún getað litið svona út , en þessar setningar voru einnig í boði...
1. Góðan daginn, má bjóða þér að gerast áskrifandi að léttsaltaðri ýsu úr Barentshafi ??
2. Ég get boðið þér slétt skipti á þessum sjaldgæfa hringvöðvaerti sem knúin er áfram af saur fágæts Orangúta í aust-vestur Líbíu ?
3. Þar hittir vel á vondann, mágur minn mjólkar apa í Zimbabwe og vantar einmitt einhentann mann í gæðaeftirlit.!
4. Kynfæri mitt datt af mér í síðustu viku eftir að fágætur tjúttdjöfull erti það með sjálfétinni saltstöng
5. Ég er einmitt hér með 2 hrossalimssokka sem voru sérsaumaðir af þríhentum rútubílstjóra frá Tjérnóbil
6. nei, ég er alveg búinn eftir að hrossasæðingamaðurinn Elli helstrokkaði þá í leit að fullkomnu sæði til kynbótaræktunnar vegna hrossasaltkjötfarsframleiðslu
7. Ég er upptekinn, þarf að fara að leika í dýraklámmynd, viltu kannski koma með og tvímenna á svíni?
8. Ekki vandamál, ég er á gaffallyftara!!
9. jahh, ég á allavega í erfiðleikum með að finna föt sem passa og neyðist til að hylja kynfæri mín með skinkusneið og tannþræði.
Annars býst ég við því að þessi síða hafi runnið sitt skeið enda erum við allir komnir heim frá Danmörku...
kveðjur Stefán Þór
Posted at 06:10 am by vanhalen
Permalink
Sunday, June 05, 2005
Komnir Heim
Jæja þá er dvöl okkar í Danmörku lokið og erum við komnir heim á æskuslóðir. Að öllum líkindum munum við hætta að viðhalda þessari síðu en eigum þó eftir að birta föstudagsframhaldssamtalssöguna í heild sinni og verður það vonandi gert fljótlega.
Ó.
Posted at 03:29 am by vanhalen
Permalink
Thursday, May 26, 2005
Í dag eru einungis 3 dagar eftir hjá okkur í skólanum, helvíti svekkjandi ... alltof kalt heima .. !!
Á morgun byrjar Jelling Festival og mun skólinn okkar vera þar á morgun og á laugardaginn, við fáum frítt inn á hátíðina og í staðinn þurfum við að vinna eitthvað smá á henni..
á morgun verður stærsta hljómsveitin Kashmir en það er danskt rokkband og á laugardaginn verða Scorpions og Saybia aðalnúmerin....
á laugardaginn er spáð 28 stiga hita og léttskýjuðu veðri og svipuðu á morgun þannig að það ætti að verða nokkuð nett að sitja í blíðunni með kaldan Tuborg og njóta tónlistarinnar ....
á síðasta ári voru um 18.000 manns, þetta er engin Kelda en ég býst við að þetta verði svalt....
Í dag fórum við drengirnir til Vejle og keyptum afmælisgjöf handa okkur eða 5000 lítra sundlaug (3,7 metrar í þvermál)með síu og loki og "fússball" spil á fótum en við gátum ekki staðist það hversu "sweet" það verður í sumar að halda partý með þessum munaðarvörum innanborðs ásamt rjúkandi heitum grillvarningi serveruðum af gullfallegum karlmönnum í speedo skýlum sem kalla ekki allt ömmu sína , líklegir kandídatar í það hlutverk eru tvíkynhneigðir latexdjöflar á borð við Kúskinn, Valsenegger og Múmíuna.. !!
Í síðustu viku vorum við á Sikiley með skólanum eins og þið ættuð að vita og var það gjörsamlega hrein snilld .. Þótt að það hafi verið stíft prógram í ferðinni þá gátum við farið 3-4 sinnum á ströndina yfir vikuna eða gert það sem við vildum og var það hellvíti ljúft ... .
afmælisdagurinn minn var helvíti súr úti á Sikiley en félagi okkar hérna í skólanum var mjög nærri því að drukkna þegar hann sogaðist út á haf í öldugangi en kennarinn okkar hætti lífi sínu og náði að bjarga honum sem betur fer.. Allir í skólanum voru í geðveiku sjokki því að allir horfðu upp á þetta gerast (fyrir utan mig og nokkra aðra) og voru allir hálfgrátandi allan daginn , en daginn eftir var síðan haldið upp á afmæli mitt og var það geðveikt gaman... .
ég nenni ekki að segja frá öllu því sem gerðist í ferðinni en það var eitt helvíti fyndið en það var þegar Óttar dróg upp með ljótari kvikindum sem ég hef séð í einni rútunni eða ál sem stínkaði duglega og lagði hann á öxlina á einni stelpunni sem öskraði eins og ég veit ekki hvað í margar sekúndur áður en hún stökk í skelfingu sinni í burtu .. óttar bar síðan álinn í kaupfélagspoka allan daginn og dróg hann upp við skemmtileg tilefni við litla hrifningu fólks í kringum hann...
hér fyrir neðan er mynd af okkur öllum, Zoffa með rokk-ömmu lookið og Óttar með álinn

Hér fyrir neðan er mynd af týnda tvíbura Óttars, Sigfúsi Búbót en hann hafði upp á Óttari fyrir nokkrum dögum sár og reiður eftir að hafa sinnt skyldum sínum sem vitleysingur í Sirkús í 20 ár. Óttar hafði á orði hversu ljótur Sigfús væri í samanburði við múrmamapa og æstist Sigfús fljótt við það .
Á myndinni sést Sigfús steyta hnefanum að Óttari.

Sunnudagur : keyrum til Hanstholm og tökum ferju þaðan til Bergen
Mánudagur : verðum í Bergen í einn sólarhring
Þriðjudagur : förum um borð í Norrænu
Fimmtudagur : ÍSLAND
sjáumst eftir viku...
Stefán Þór Eyjólfsson
Posted at 12:58 pm by vanhalen
Permalink
Friday, May 13, 2005
Sikiley !!!!... Föstudagsframhaldssamtalssagan !!::..
Loksins er Föstudagsframhaldssamtalssagan vöknuð á ný þannig að endilega takið þátt því þetta er líklega næst síðasta sagan ...
Annars er faðir Zoffa Jón Júlíusson og frændi Zoffa Bóbó hérna í stuttri heimsókn í skólanum og hafa þeir fengið eitt herbergi hérna í skólanum til að gista í . Við vorum einmitt að koma úr heimsókn frá þeim en þeir buðu okkur grjótharðir upp á Whiskí og Líkjör og var það helvíti hressandi...
Á morgun verður svo haldið á stað til Sikileyja þar sem hitinn er um 30 gráður og munum við verða þar í eina viku, við fljúgum frá Hannover í Þýskalandi þannig að við þurfum að keyra eitthvað í rútu á morgun en við erum bara eldferskir þessa stundina og tilbúnir í þetta gríðarlega Roadtrip...
Í dag var svo herbergistékk.. því að herbergin okkar verða leigð út og áttum við að þrífa herbergin hátt og lágt... herbergið okkar óttars var ég held ég eina herbergið í skólanum sem féll í þessu tékki t.d út af því að óttar gleymdi "hotspot" eða staðinn bak við klósettið, kjéllingin tók eftir staðnum vegna glass sem stóð þar, út af hverju veit ég ekki .. svo gleymdum við fleiri hlutum...
Síðan gerðist það ... við þurftum að snúa rúmunum við og ýta þeim upp að veggnum og Óttar var eitthvað pirraður ennþá eftir herbergistékkið að hann spyrnti sér svo fast í rúðuna með þeim afleiðingum að hún mölbrotnaði eins og sést á myndinni .... Óttar er ennþá ekki búinn að tilkynna atvikið en búast má við því að hann geri það .....
Á neðri myndunum tveim sést svo undirbúningur fyrir Sikileyja ferð .. en við Zoffi skelltum okkur í ljós fyrir Sikileyjaferðina og sést ég bera á hann aftersun með góðum strokum... en ég vil taka það fram að ég er ekki nærri því eins góður að bera á eins og Gunnar Gunnarson .. en hann er þekktur fyrir "OF" blíðlegar strokur sem hafa fengið skeggjuðustu karlmenn til að kikna í hnjáliðunum...

en þarf að fara að gera mig kláran fyrir Mafíuna á Sikiley..
kveðja Stefán Þór
Posted at 01:49 pm by vanhalen
Permalink
Thursday, May 12, 2005
Síðustu helgi þá skelltum við félagarnir okkur til Brúsagarðs sem er rétt hjá Árhúsum, í heimsókn til Soffíu Tinnu. Við lögðum á stað sprækir á föstudeginum á Van Halen í góðri stemmingu, á miðri leið æstist svo leikurinn eftir að Bjöggi Hall var settur á fóninn og ákváðu þá Óttar og Stefán í geðshræringu að múna bílana fyrir aftan þá, fyrir barðinu á þeim varð t.d grjótharður vörubílstjóri með hring í augnbrúninni og pottþétt í vítisenglunum en er hann tók fram úr okkur veifaði Stefán honum hress en á móti fokkaði hann grimmilega á okkur meðan saklaus dóttir hans horfði skelfd á við hlið hans, vakti þetta mikla kátínu meðal okkar félaga og tókum við fram úr honum aftur til að taka myndir af honum.
Loksins komum við síðan á Brúsagarðinn til Soffíu Tinnu gullfallegir að vanda og sýndi hún okkur skólann sinn og verkefni sem hún hafði gert þar. Um kvöldið var svo Tour de chambre hjá skólanum hennar og komið var við og drukkið í flestum herbergjum og var Soffía búin að innrétta baðherbergi sitt sem stofu.. síðan urðu einhverjir fullir og sérstaklega Zoffi sem drapst í sófanum inn á baðherberginu hennar mjög snemma um kvöldið ... Zoffi sofnaði í sófanum hennar Soffíu.. gaman af þessu, um nóttina var síðan Stefán áreittur kynferðislega í svefni af ónefndri stelpu og náðist það allt á video... !!!
morgunin eftir var síðan farið í neysluferð til Randers.. og með í för voru íslensku stelpurnar í skólanum hennar Soffíu... Eva, Bára, Sissú og Lára ásamt Soffíu .. en þær héldu sér varla í brókunum út af glæsileika Van Halen og sannaðist það þegar ein þeirra múnaði saklausan óstöðugan reiðhjólamann í miðborg Rannes með skemmtilegum hætti...
Í Randers var svo farið út að borða á steikhúsi og síðan var keyptur grillmatur og öl fyrir kvöldið....
Óttar er sérstakur maður, það eru flestir sammála um það, Í súpermarkaðnum hafði óttar rekist á fulla innkaupakerru af kremi sem hafði verið tekið niður úr hillunum vegna aldurs og óvinsælda.. Óttar spurði afgreiðslukonuna hvað þetta myndi kosta fyrir hann ef hann keypti allt saman og fékk hann það svar að hann fengi hverja túpu á 10 kall , þannig að óttar keypti allt saman eða 206 túpur af svitaeyðakremi fyrir konur á 2060 kr. íslenskar... allt saman var þetta gríðarlegt vesen því telja þurfti hverja einustu túpu og þurfti að kalla til auka starfsfólk til að telja og raða í poka..
hér sést óttar ásamt hluta af kreminu.....

eftir þetta var haldið upp í skóla og var stuttu seinna byrjað að tendra í gríðarlegum bálkesti en maður að nafni Logi hafði birtist allt í einu og hafði "control" á öllu í sambandi við bálið en það er önnur hlið Stefáns Þór Eyjólfssonar sem brýst fram þegar tendrað er upp í báli, mjög umdeild persóna....
einnig má geta þess að hann sá um eftirréttinn = bananar svo stútfullir af Marsi að MarsMcVíðir sjálfur hefði kiknað í hnjánum er marssósan draup niður eldrauðar kinnar neytenda þess...
Svo góður var eftirrétturinn að talað var um tímamót í bananamarsgerð og lak slef úr munnvikum manna tímum á eftir ...
Gríðarleg stemming var kringum bálkestin langt fram á kvöld en endaði hún þegar Logi brá sér frá í stutta stund en þegar hann kom til baka var allt farið til fjandans því búið hafði verið að slökkva að mestu í bálinu með slökkvitæki , til að krydda aðeins upp í mannskapnum ákvað Logi þá að henda spreybrúsa á eldinn með þeim afleiðingum að gríðarleg sprenging blossaði upp stuttu seinna þar sem rúður skólans titruðu og glóðboltarnir þutu vítt og breitt um svæðið, næsti hálftíminn fór þá í að slökkva í þeim til að koma í veg fyrir sinubruna á Brúsagarðssvæðinu....
Eftir þetta var haldið í eldhús skólans og byrjað að leita af einhverju til að éta og fundum við eitthvað hakk og Soffía og Lára fundu Tertu sem lá í frystinum í skólanum og byrjuðum við að elda það.
Allt í einu klikkast þá einhver drengur sem er búinn að vera þarna allan tímann inni þegar hann fattar að við erum að elda hakkið hans og búin að éta tertuna hans líka skyldist mér ....
Hann verður allveg kolvitlaus og fer að kasta blótsyrðum yfir íslendingana og er mjög nálægt því að ráðast á okkur ásamt félaga sínum.... gaman af þessu... ég meina hakk er hakk !!
síðan var farið í rúmið stuttu seinna eftir að Zoffi og Soffía snéru öllum stólum og myndum við í einhverjum sal í skólanum...
morgunin eftir héldum við síðan af stað heim eftir þessa frábæru ferð til Brúsgarðs eftir að hafa málað hann vel rauðan... hérna eru helgarsagan frá öðrum hliðum www.s-tinna.blogdrive.com og http://www.blog.central.is/sissu
við viljum við þakka Þórdísi, Evu, Báru, Sissú, Láru og auðvitað Soffíu fyrir frábæra helgi og við sjáumst á Jelling Festival, einnig viljum við hvetja aðra íslendinga í danmörku að koma á þessa hátíð því hún á víst að vera helvíti góð...bönd : Kim Larsen, Saybia, SCORPIONS, Kashmir, Nik &Jay, fínt svona fyrir íslendingana að hittast áður en allir fara á klakann aftur...
Að lokum viljum við óska Andra Valssyni klerkfræðing til hamingju með gærdaginn en þá varð hann 21 árs … eldgamall djöfull þar á ferð !! :..
kveðjur frá Danmörku........
Posted at 12:42 am by vanhalen
Permalink
Friday, May 06, 2005
Í gær voru mamma og kristín systir í heimsókn í skólanum í tilefni af fjölskyldudeginum en ég var svo góður að bjóða þeim ... mamma er einmitt akkurat hérna í Danmörku núna þannig að það passaði vel ...
Annars erum við að undibúa för okkar núna til Arhus þar sem við ætlum að heimsækja Soffíu Tinnu og lýðháskólann hennar á Van Halen ......
Nú er rúmlega vika í ferð okkar til Sikileyjar og vona ég að það verði jafn gaman og á Spáni í útskriftarferð fyrir rúmlega ári síðan ....

Takk fyrir lánið af myndinni Magga og við verðum að heimsækja ykkur seinna bara stelpur í Sondeborg !!!.
ps. Harmonikkan er lent í Brandbjerg ásamt frábærri gasgrímu..!!!
kv. Þór hinn alvarlegi
Posted at 05:16 am by vanhalen
Permalink
Wednesday, May 04, 2005
Jæja, þá er strákurinn kominn með sitt fyrsta tattú. Ég skellti mér á tattústofu í Vejle og fékk mér kelloggs special K káið á brjóstið. En annars er hefðbundin kennsla hérna skólanum búin, nú tekur við fræðsla um ítalíu fram að ferð okkar til Sikileyjar og eftir það er tónlistarhátíðin Jelling festival þar sem Scorpions og Kim Larssen leika fyrir tangói, áætluð heimkoma til Íslands er svo 2. júní.
Langaði bara að létta þessu af hjarta mér. bless
Óttar Brjánn Eyþórsson
Posted at 10:54 am by vanhalen
Permalink
Wednesday, April 27, 2005
er búinn að vera þokkalega aktívur síðasta klukkutímann og nú er komnar inn myndir af boggruppukvöldum hjá mér og gistingu í skóginum......
smelliði bara á linkinn MYNDIR hérna vinstra meginn á síðunni ef þið viljið skoða þetta
takk fyrir
Posted at 03:16 pm by vanhalen
Permalink
Tuesday, April 26, 2005
Þá er komið að því að rita ferðasögu helgarinnar en VanHalen hélt af stað til Þýskalands snemma á föstudagsmorgni með the 3 kings innanborðs ásamt Elínu Hörðu. Fljótlega kom í ljós að auðvitað hafði enginn tekið með sér vegabréf nema Z. og því var snúið við og ferðinni aflýst. En eftir nokkrar rökræður var ákveðið að leggja aftur af stað og var brunað áleiðis til Sönderborg þar sem Sandra Rut beið í ofvæni eftir riddaranum sínum á hvíta Sendibílnum. Þegar við komum til sonderborg sóttum við Söndru, áttum mök við styttur og brunuðum svo áfram til þýskalands, alla leið til Hamburg þar sem við sögðum skilið við Elínu sem fór að heimsækja gamla vini (hún var skiptinemi í Hamburg) og fórum svo að leita að tjaldsvæði. Við komumst fljótt að því að það er ekki auðvelt að vera á stórum klunnalegum dodge van með enga glugga í ókunnugri stórborg og rata ekkert og vita ekkert, við brutum allar þýskar umferðarreglur og reykspóluðum í U-beygju á einum stærri gatnamótum í borginni og svínuðum svona 40 bíla í einu svo var bara pedallinn settur í metalinn og reykað burtu. Í þessum hamagangi þeyttist allur farangur í bílnum útum allt og myndavélin hans Zoffa flaug í vegginn og bilaði, þess vegna eru nánast engar myndir til úr ferðinni og það er ekki gott. Loksins fundum við tjaldstæðið sem var einungis ætlað húsbílum svo við neyddumst til að borga fyrir bílinn og tjalda svo á möl, eftir það fórum við á McDonalds til að fá okkur Hamborgara í Hamborg og kíktum svo á hverfisbarinn þar sem stemmingin var vægast sagt súr en vegna mikillar þreytu var fljótt haldið í tjaldið og lagst til svefns. Daginn eftir þurftum við að yfirgefa tjaldstæðið því það var upppantað vegna Hamborgarmaraþonsins sem fór fram um helgina. Næstu tímar fóru í það að vera villast á götum borgarinnar í Vanhalen og síðan var haldið á knattspyrnuleik, við keyptum miða af svartamarkaðsbraskara á uppsprengdu verði og skelltum okkur að sjá Hamburger SV taka á móti Hansa Rostock. 60.000 manns voru á leiknum sem lauk með 3-0 sigri heimamanna. Næsta mission var að finna nýjan svefnstað og fundum að lokum mjög fínt tjaldstæði þar sem við slógum upp tjaldbúðum okkar og grilluðum. Um kvöldið kom Elín til okkar og leiddi okkur í sannleikann um næturlíf Hamborgar sem þekkt fyrir klám, stripp og sex shops. Við röltum um bæinn og lentum m.a. inná einn rotnasta bar sem ég hef séð, þar virtist allt mjög skítugt, bara spilað þungarokk og flestir gestirnir voru áfengisdauðir. Við stoppuðum ekki lengi þar og héldum pöbbarölti okkar áfram fram á næsta dag, sváfum aðeins og kíktum svo aftur í bæinn þar sem við lentum í einhverjum fagnaði samkynhneigðra (massaðir þýskir hommar útum allt) og allskonar hátíðahöldum enda mikið líf í borginni útaf maraþoninu. Svo keyrðum við aftur til Sönderborg þar sem fyrsta "roadkill" van halen átti sér stað en hann straujaði yfir danskan mink og fór létt með það... við skiluðum síðan Söndru og gistum, daginn eftir fórum við aftur til þýskalands en í þetta skipti til Flensborgar þar sem Stefán upplifði German Love Film, við fórum inní pínkulitla second hand shop þar sem risastór hundur eigandans gekk rakleiðis að stefáni og sleikti á honum punginn allan tímann þar inni... sem sagt í grófum dráttum var 5 mínútna second hand shop ferðin svona hjá stefáni : hei .. second hand shop.. opna dyrnar labba 2 metra inn.......... sé gríðarlega þýskan mann... sé gríðarlega stóran hund hans ganga í áttina að mér .... stoppa... þýskur risahundur byrjar að sleikja á mér klofið... .... þýskur risahundur hættir að sleikja á mér klofið og ég fer út ... mæli eindregið með þvi að þið farið í þýska second hand shop og þiggið frían klofþvott frá ógnvægilega stórum þýskum hundi, það er sérstök upplifun.... Áðan fréttum við það að nærvera okkar í Hamborg var svo gríðarlega sterk að íbúar borgarinnar eru farnir að springa en þið getið lesið allt um það HérEn nú er þetta orðið svo helviti langt að ef þú ert ennþá að lesa þetta verð ég að hrósa þér fyrir dugnað og eljusemi.
Posted at 01:48 pm by vanhalen
Permalink
Friday, April 22, 2005
Eftir 40 minutna keyrslu til Thyskalands segir zoffi : erud thid med Vegabrefin ykkar ?? svar,vid : NEI thokkalega ekki...
sidan hofust rifrildi um hvort vid thyrftum ad hafa vegabref og afhverju Zoffi hefdi ekki minnt okkur a thau thegar hann pakkadi sinu...
en sidan hringtum vid i skolafelaga okkar og their sogdu ad vid thyrftum ad hafa vegabref...
svo ad vid thurftum ad snua vid eftir 40 minutna keyrslu og keyra til Brandbjerg hojskole ad sækja vegabrefin..... og her erum vid nu....
en HEI... Johnny dick´s:.. svona er sumarid 2001 !!!...
en nu erum vid ad fara aftur a stad til HAMBURG... thar sem stefnan er sett m.a annars a Hamburg marathon , 18.000 manns.. !!!!!!!!!!!
roadtripkvedjur
..stefan
Posted at 02:10 am by vanhalen
Permalink
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|